Dimma Ný Útgáfa.
10.990 kr.
Dimma er með tvo vasa á hliðum.
Silicon teygja í streng svo þessar haldast virkilega vel uppi. (Slakari siliconteygja en í síðustu sendingu)
Allar mínar svörtu ræktarbuxur eru úr þéttasta en samt léttasta efni sem ég hef fundið í gegnum árin.
Dimma er með extra háum aðhaldsstreng og silicone teygju efst á honum svo þær renna ekki niður né rúllast.
Ítalskt mesh efni á kálfum og yfir hné.
Efnið er einstaklega dimmt og þétt sem geggjað er að æfa í og alls ekkert gegnsætt.
Kameltá vörn ( Já ég er beðin um það haha ) og merktar með silicone logo á streng.
Við breytum og bætum buxur fyrir hverja og eina eftir þörfum svo allar konur fái buxur sem smell passa fyrir sinn vöxt.
- Hægt er að fá óléttustreng á allar buxur frá Befit fyrir 2000kr.
- Eftir meðgöngu skiptum við svo aftur í venjulegan streng fyrir þig og þú notar buxurnar áfram.
- Við styttum og þrengjum buxur fyrir þig og lögum streng ef hann rúllar.
- Við gerum við litlar saumsprettur á okkar buxum fyrir lágmarksgjald ef eitthvað skildi koma uppá við mikla notkun.