Esja Svört
Esja kom að þessu sinni í ekki því efni sem ég bað um og ákvað ég því að selja hana strax út á góðum afslætti. Fullt verð: 12.990 en nú 8.000,-
Efnið er örlítið viðkvæmari bómull en ég kýs að hafa í mínum peysum og er því þörf á að þvo hana sér á stuttu köldu kerfi og hengja upp.
Engu að síður frábær flík en næsta sending kemur úr skotheldri bómull.
Einföld í útliti en svo sjúklega kósý.
Mikið er spurt um peysur án hettu og varð ég því að gera eina svona síða og hettulausa.
Vasar á hliðum og rúmt hálsmál,
Lítið silicone logo að framan.
Peysan er stór í stærð.
Þar sem peysan er á afslætti fæst henni ekki skilað en minnsta mál að skipta um stærðir ef þarf.